|
Eldra efni Fjölskyldan á Bifröst Nafn: Halli, Ingibjörg, Margeir, og ÞorbergurFarsími: 6186465Tölvupóstfang: halliiso(hjá)internet.isMSN netfang: haraldj(hjá)husa.isHeimilisfang: BifröstUm: Við erum fjölskylda sem fór á vit ævintýranna, flutti frá Ísafirði á Bifröst og sjáum ekki eftir því.Tenglar |
20.12.2011 12:55Að telja blessanirÉg á bilaða þvottavél og einnig beyglaðan og laskaðan bíl og eldgamalt túbusjónvarp, EN í dag tel ég blessanirnar í lífi mínu og ég næ ekki að telja þær allar, þær eru svo margar, sumar búa með mér og veita mér endalausa gleði og hamingju, sumar eru fluttar að heiman frá mér en veita mér líka endalausa gleði og hamingju. Sumar þeirra eru tengdar mér með genatískum hætti aðrar ekki en blessa líf mitt margfaldlega. ÉG ER MJÖG BLESSUÐ KONA og er þakklát fyrir allar þær blessanir en einnig fyrir erfiðu stundirnar sem hafa gert mig að því sem ég er í dag, ég hef horft í myrkrið kolsvart án þess að sjá leiðina út, en ég hef líka lært að treysta á Guð í lífi mínu og hélt það í mér lífinu að treysta á að Hann þekkti leiðina út úr myrkrinu og Hann myndi taka í hönd mína á réttum tíma og leiða mig inn í birtu á ný. Ég gleymi mér stundum og tala of mikið um dimmu stundirnar í mínu lífi við annað fólk sem ekki hefur gaman af að hlusta á, en ég hef líka lært að það gerir ekkert til og að fyrir kemur að saga mín skemmtileg og/eða leiðinleg hefur snert við lífi annarra og jafnvel gefið von í vonleysi. Mannfólk er alltaf að velta fyrir sér tilgangi lífsins alls, í mínum litla heimi hef ég þá trú Í DAG, að tilgangurinn sé ást og kærleikur sem ég veit og sé allt í kring um mig að hefur hvað mest áhrif á líf okkar allra. Ást og/eða ástleysi og kærleikur og/eða kærleiksleysi mótar í raun alla okkar umgjörð og það hvaða áhrif við höfum á samferðafólk okkar sem og komandi kynslóðir. Ég hugsa um jólin án þess að hafa svo sem neina helgislepju yfir þeirri hugsun en þau fá mig til að huga að atriðum eins og hér koma fram í þessu bloggi. Þau fá mig til að huga að blessunum í mínu lífi sem einmitt lúta, þegar upp er staðið alls ekki að veraldlegu ríkidæmi sem ég trúi þó að mér hlotnist á hverjum þeim tíma sem "þörfin" kallar á og í því mæli sem "þörfin" kallar á. Það hvort frelsarinn minn hefur örugglega og útmælanlega fæðst á þeim degi sem við mynnumst fæðingar hans skiptir mig ENGU MÁLI, eða hvort jólahátíðin hefur sprottið upp úr einhverri annarri hefð skiptir mig heldur engu máli. Jólin hafa sterka þýðingu í mínu lífi og hafa alla tíð haft svo það er mergurinn málsins, þau fá mig til að hugsa, elska og njóta. Ég óska ykkur gleðilegra jóla, ég þakka fyrir samverustundir okkar á árinu sem er að líða eða enn eldri samverustundir þar sem þið hafið örugglega náð að snerta líf mitt á einhvern hátt. Ég óska ykkur farsældar á komandi ári og þess að þið megið telja blessanir ykkar oft eða sjaldan allt eftir því hvað ykkur hentar. Kveðja Ingibjörg Skrifað af Ingibjörg 23.08.2011 23:11Sumarskýrsla 2011Jaaaá
alveg rétt hér eigum við víst heimasíðu, þar sem hægt er að blogga og allt. Ég
hef nú bara verið tillitsöm við þá sem dettur kannski óvart í hug að ráfa hér
inn á, ég er búin að vera svo pólitísk í hugsun og jafnvel þótt ótrúlegt sé nöldursöm
yfir hinu og þessu En við erum búin að eiga alveg dásamlegt sumar fjölskyldan og margt búið að bralla á síðustu mánuðum. T.d. eins og flestir vita búið að ferma snúðana með stæl. Það eru flottar myndir af þeim í myndaalbúmunum sem Halli er búinn að hlaða hér inn af miklum móð. Svo var stanslaust fjör á Blámýrum allan júlímánuð þar sem
unnið var eins og hver dagur væri sá síðasti og enginn væri morgundagurinn sem
alltaf rann samt upp..........og oft ótrúlega snemma hjá sumum í hópnum,
sérstaklega þegar Barði gröfukall var á svæðinu og lengstu hrotutúrarnir voru
ca.2.mínútur. Og húsið er að fullu orðið vindþolsprófað innan frá það hefur
góða samdráttar og útþenslueiginleika, það kom í ljós þegar það var kominn
saman hinn margrómaði karlahrotukór á svefnloftinu eftir ýmsar
æfingarsamsetningar. Hámarkinu var náð þegar ég heyrði mikið brölt þrátt fyrir
fagran samhljóminn og niður stigann kom allt í einu fljúgandi dýna, svo komu
fætur og sæng og koddi og ungur maður sem er mér skildur. Ég horfði á hann
spurnaraugum Við höfum hitt margt skemmtilegt fólk í sumar bæði okkur skylt og óskylt og höfum, talað, hlegið, sungið, gefið köttinn og tekið köttinn til baka Lífið er að falla í fastar skorður þessa dagana, ég er auðvitað búin að vera að vinna frá því strax eftir verslunarmannahelgina, snúðarnir voru að byrja í sínum skóla í dag og kjellinn, stóri skólastrákurinn er að verða eins og móðursjúk húsmóðir í vesturbænum af því að vera heima að gera "ekkert" nema þvo þvotta, dekra fjölskylduna og fleira í þeim dúr, en það fer nú að lagast þegar skólinn byrjar eftir mánaðarmótin..... þetta er nú ekki leggjandi á nokkurn mann að þurfa að vera í svona löngu "sumarfríi".
Skrifað af Ingibjörg Flettingar í dag: 3 Gestir í dag: 2 Flettingar í gær: 12 Gestir í gær: 5 Samtals flettingar: 19176 Samtals gestir: 6714 Tölur uppfærðar: 28.1.2012 11:56:40 |
Engjavegspúkarnir á Bifröst
Fjölskyldan sem reif sig upp frá Ísafirði þeim yndislega stað og flutti á Bifröst


